Fréttir
  • Sérstök skilti sem minna vegfarendur á mikilvægi þess að fara varlega, verða sett upp á nokkrum framkvæmdastöðum við vegi landsins í sumar.

Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér

Morgunfundur um vitundarátak sem stendur yfir í sumar

2.5.2024

Öryggi starfsfólks við vegavinnu verður til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar þriðjudaginn 7. maí. Þar verður kynnt vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, flutt stutt erindi um reynslu fólks af því að starfa í nálægð við þunga umferð og Samgöngustofa frumsýnir myndband um akstur gegnum vinnusvæði.

Vegavinna í nálægð við þunga og hraða umferð getur verið stórhættuleg þeim sem við hana vinna. Því eru vinnusvæði ávallt vel merkt og hraði í gegnum þau lækkaður. Því miður ber það ekki alltaf árangur og hraði í gegnum vinnusvæði er oft mikill sem eykur mjög hættu fyrir starfsfólk og vegfarendur.

Morgunfundurinn fer fram í húsakynnum Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ, og stendur frá klukkan 9:00 til 10:15. Fundurinn er opinn öllum og heitt verður á könnunni. Einnig verður fundurinn í beinu streymi.

Fundurinn er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Samgöngustofu en fjöldi verktaka mun taka þátt í vitundarátakinu í sumar með því að setja upp skilti til að minna fólk á að aka varlega, enda séu mæður, feður, ömmur, afar, frændur og frænkur að störfum. Þannig verður reynt að auka vitund vegfarenda um öryggi á vinnusvæðum á og við vegi landsins.

Dagskrá

Manstu ekki eftir mér? Sævar Helgi Lárusson, öryggisstjóri Vegagerðarinnar

Óöryggi á vegum úti. Þröstur Reynisson, verkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Borgarnesi

Hraðakstur á vinnusvæðum er vandamál. Ágúst Jakob Ólafsson/Einar Hrafn Hjálmarsson, verkstjóri hjá ÍAV.

Akstur um vinnusvæði – Fræðslumynd. Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson


Beint streymi verður af fundinum:

Morgunfundur Vegagerðarinnar: Akið varlega! - mamma og pabbi vinna hér.