Auglýst útboð

Yfirlagnir á Austursvæði 2024, blettanir með klæðingu

29.4.2024

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir á Austursvæði, blettanir með klæðingu.

Helstu magntölur fyrir hvort ár:

  • - Blettun á Austursvæði með þjálbiki                           58.500 m2
  • - Flutningur steinefna                                             27.495 m3 *km
  • - Flutningur bindiefna                                               8.190 m3 *km   

Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 29.  apríl 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. maí 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.